1.5.2007 | 07:22
Italian Open
Loksing að maður sest við tölvuna og skrifar.. Ég er ekki nægilega duglegur að skrifa enda lítill tölvumaður í mér. Ég ætla mér samt sem áður að reyna að vera duglegur að blogga þegar ég er í mótum og segja frá því hvernig þetta gengur allt saman fyrir sig. Ég lenti í Milan snemma í morgun eftir klukkutíma flug frá Lúxembourg, ég var rétt í þessu að klára morgunmatinn og er á leiðinni að æfa og ætla svo að spila völlinn í dag. Ég á von á að spila helling á næstu þrem mánuðum og kemst þá vonandi í gott keppnisform. Ég er búinn að æfa helling í fríinu við fínar aðstæður í Lúxembourg, vellirnir þar eru allir að koma til og veðrið er búið að leika við landann. Það er erfitt að segja til með nákvæmlega í hvaða mótum ég mun taka þátt þar ég og þeir sem unnu sér inn kortið í gegnum úrtökumótið erum með þannig stöðu að við erum að detta inn á síðustu vikunni í e-ð að mótunum. Miðað síðustu ár þá á ég von á að spila í 20 - 25 mótum á árinu þannig að það er eins gott að standa sig vel á þeim mótum :).
Æfingarnar hafa ekki gengið eins vel og ég hafði vonað, ég er ekki nægilega sáttur við sláttinn en er að vona að þetta detti inn á réttum tíma. Ég bíð spenntur eftir að byrja að keppa aftur. Ég mun taka þátt í næstu tveim mótum og vonandi kemst ég inn í Írland líka :). Stóri leikurinn er svo þar sem mínir menn koma til Milano að tryggja sig í úrslitarleikinn ;) í champions league og er ég viss um að það verður gríðaleg spennog vonandi jafn skemmtilegur leikur og fyrri leikurinn var. Ég ætla að skella mér út á völl og læt heyra í mér síðar :)..
Biggi
Eldri færslur
Tenglar
Áhugaverðir tenglar
Áhugaverðir tenglar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (16.4.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.