Leita í fréttum mbl.is

Indonesia

Jæja jæja, ég ætla að prófa að blogga því það eru svo spennandi ár framundan hjá mér. 

Ég er að fara að taka þátt í mínu fyrsta móti á nýju ári en þetta er þriðja mótið mitt á 2007 golftímabilinu á túrnum. 

Ég fór frá Lúxembourg í gær (sunnudagskvöld) og lenti á flugvellinum í Jakarta um kvöldmatarleitið daginn eftir.  Flugið gekk vel og þegar ég kom út af flugvellinum þá tók á móti mér mjög mikill raki og hiti.  Það var mikið menningarsjokk að keyra í gegnum borgina Jakarta enda fátt eins og maður er vanur í Evrópu og þessum löndum sem ég hef verið að fara til sl. ár.  Hóelið er mjög fínt en það er mjög mikil öryggisgæsla á hótelinu og minnti mig mikið á að fara í gegnum öryggishlið á flugvöllum því allir bílar sem eru að koma á hótelið eru stoppaðir, skoðað inní þá og fólkið þarf að fara í gegnum hlið eins og er á flugvöllunum.  Þar sem tímamunurinn eru +6 tíma þá fékk ég mér smá að borða og ætla að halla mér til þess að vera hress og sprækur á morgun þegar ég tek fyrsta æfingarhringinn minn á vellinum. Ég hef fulla trú á að þetta verði skemmtilegt og ég mun gera mitt besta .  Hver veit nema ég bloggi eftir morgundaginn..   það er að segja ef einhver nennir að lesa þetta blogg mitt!

 


Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Frábært að blogga svona svo maður viti hvað er að gerast. Gangi þér sem allra best á mótinu á fimmtudaginn.
P.S. verður sýnt ´frá mótinu á sýn?

Davíð (IP-tala skráð) 13.2.2007 kl. 21:53

2 identicon

Sæll. Gott að þér líður vel þarna. Gangi þér sem allra best...við reynum að senda þér hlýja strauma...SP og fjölskylda ;-)

Siggi Palli (IP-tala skráð) 13.2.2007 kl. 23:19

3 identicon

Gaman að þú skulir miðla reynslu þinni með okkur hinum sem dreymir að komast á sama stað og þú. Gangi þér rosalega vel fimmtudag og föstudag og laugardag og sunnudag. :) Kv af klakanum.

Guðni Sig. (IP-tala skráð) 14.2.2007 kl. 08:36

Bæta við athugasemd

Hver er summan af fjórum og núlli?
Nota HTML-ham

Höfundur

Birgir Leifur Hafþórsson
Birgir Leifur Hafþórsson
Birgir Leifur Hafþórsson kylfingur úr GKG og spilar á Evrópumótaröðinni.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband