Leita í fréttum mbl.is

Dekur og æfing

Dagurinn byrjaði á því að ég var svo sendur í dekur á boði Eurpeantour weekly þar sem þeir eru að gera þátt um kappann.  Það var verið að taka upp viðbót við það sem var tekið upp í gær og í dag var ég sendur í asískt nudd, heita bakstra og fékk rosalegasta höfuðnudd ever:), var látinn í slopp, látinn bera á mig sólarvörn og meira sprell(ég vona nú samt að þeir klippi það út).  Það var rosalega gaman að fá að taka þátt í þessu og verður þátturinn European weekly sýndur næsta miðvikudag.   Eftir dekrið og hádegismat var haldið út á golfvöll, það var rosalegur hiti í dag og mjög mikill raki.  Það mátti ekki spila á vellinum í dag þannig að ég sló og æfði púttin mjög vel og æfði strokuna á grínunum.  Þegar ég kom á hótelið þá datt ég inn í myndina Never been kissed og er hún bara alveg ágæt afþreying.  Núna ætla ég að fá mér smá meira sushi og henda mér í háttinn því það er wake up kl 04:00 í nótt því að rútan fer klukkan 04:45 ég er í fyrsta holli. 

 Læt heyra hvernig hringurinn gekk á morgun. 

Biggi

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Maður væri nú ekkert á móti svona meðferð, hugsa til þín og gangi þér vel í kvöld;)
p.s. Mamma og pabbi biðja að heilsa..

Hafdís (IP-tala skráð) 14.2.2007 kl. 13:54

2 identicon

Sendi þér baráttu kveðjur héðan úr kuldanum á klakanum. Stattu þíg strákur!
kv.
Valur.

Valur Jónatansson (IP-tala skráð) 14.2.2007 kl. 14:06

3 identicon

Jæja þá er að taka á því. Gangi þér vel. það má segja að þetta sé hálfpartin næturgolf. :)

Wedge (IP-tala skráð) 14.2.2007 kl. 14:37

4 identicon

Hvernig væri að setja nýtt vallarmet þarna og gera allt vitlaust.Ég fylgist með þér í sjónvarpinu.Baráttukveðjur frá norðurlandi

Ásgrímur Harðarson (IP-tala skráð) 14.2.2007 kl. 23:08

5 identicon

Flott að þú ert farinn að blogga. fylgjumst með þér...Mikið rosalega öfundaði ég þig af þessari meðferð sem þú fórst í. ;) Gangi þér vel, baráttukveðjur.

Dagný (IP-tala skráð) 15.2.2007 kl. 08:44

Bæta við athugasemd

Hver er summan af einum og ellefu?
Nota HTML-ham

Höfundur

Birgir Leifur Hafþórsson
Birgir Leifur Hafþórsson
Birgir Leifur Hafþórsson kylfingur úr GKG og spilar á Evrópumótaröðinni.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband