Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Íþróttir

Dæmigerður túristi ;)

Ég byrjaði daginn á æfingum og heimsókn til sjúkraþjálfara.

Hann bannaði mér að æfa mikið í dag og sagði mér frekar að hvíla og teygja eins mikið og ég gæti fyrir morgundaginn. biggi leifur

Eftir æfingu og miklar teygjur fórum við Beta til Sanya sem er höfuðborgin hér á Hainan Island. Það var mikil upplifun að fara þangað og loksins var Kína eins og við vorum búin að ímynda okkur þ.e.a.s  fullt af fólki og allt í kínversku .).  

Við löbbuðum um bæinn og keyptum heilan helling af tyggjó því það var víst efst á óskalistanum hjá dóttur minni að kaupa tyggjó í Kína. 

Það var mjög gaman að labba um í bænum og skoða mannlífið í Sanya, fólkið ferðast flest um á vespum og oftar en ekki voru 3-4 að troða sér á sömu vespuna Crying

Leigubílarnir voru flestir vespa með hangandi kerru sem fólk treður sér í og lætur skutla sér á milli staða.  Okkur leist nú ekki mikið á matseldina í borginni og enduðum eins og dæmigerðir túristar á KFC Blush.  

Það er búið að vera  lúxus að vera hér á Hainan Island og allt eins og best er á kosið, öll umgjörð á mótinu er góð, völlurinn góður, veðrið gott og maturinn mjög góður.  

Núna ætla ég að teygja aðeins meira og henda mér svo í háttinn svo ég vakni sprækur.

Kær kveðja

Biggi 


Allt í fína í Kína

Jæja þá er maður búinn að spila völlinn og gekk það bara ágætlega.  Dagurinn byrjaði frekar undarlega, við ætluðum að byrja daginn snemma og stilltum við klukkuna á 7.  Við heyrðum ekki einu sinni í klukkunni og hrukkum upp um 10.20 og vissum ekki almennilega hvar við vorum. 

Svona getur nú tímamunurinn farið í mann þar sem hann er 7 tímum á undann hér en í Lúx. Það var hlaupið niður í morgunmat áður en hann lokaði og var ég hálf feginn að sjá marga spilara í sömu sporum og ég með stýrur niður á kinnar. course01_s

Þá var haldið út á völl og tekinn létt upphitun og farið svo og spila.   Völlurinn er mjög flottur, lítil grín en mjög mikill halli í þeim.  Það er fullt af glompum,  vötn hér og þar.   Allt eins og það á að vera.  Mikið atriði að vera réttum megin við pinnann. 

Á morgun verður svo æft mikið pútt og vipp. Verð líka að hitta physio gæjann, láta nudda úr mér takið sem er ennþá að há mér aðeins. 

Eftir það mun ég slaka á og fara í bæinn með konunni að kaupa myndavél svo við getum sýnt ykkur hvað það er fallegt hérna.  

Því það er rosalega fallegt hérna, hótelið alveg við ströndina og sandurinn mjúkur eins og hveiti.  

Maturinn góður og fólkið alveg yndislegt.  

Bless í bili,

Biggi og Beta


Kapphlaup, tafir - 30 tíma ferðalag til Hainan Island

Jæja jæja þá erum við komin til Hainan Island eftir tæplega 30 tíma ferðalag.  

Ferðin byrjaði nú ekki allt of vel því þegar við komum á flugvöllinn í Frankfurt svona frekar sein ;) þá var allt stopp í terminalinu okkar vegna öryggisráðstafana.hainan-map

Það var pakki á gólfinu við hliðina á ruslafötu sem var verið að athuga með og eftir fullt af aðgerðum á pakkanum var opnað aftur og þá tók við kapphlaup hjá öllum að komast að innritunarborðinu sem allra fyrst til að tékka inn.

Þetta gekk allt saman upp og við upp í vél og áður en við vissum að vorum við komin til Hong Kong, við náðum að dotta í fluginu þannig 11 tímarnir voru alls ekki svo lengi að líða.  

Við vorum í Hong Kong í 6 tíma og tókum svo flug til Hakuau og loks til Hainan Island :).  Hótelið og umhverfið er rosalega flott og hlakkar okkur til að vakna á morgun og kíkja á aðstæður á vellinum.

Þegar við komum út úr vélinni tók á móti okkur mikill raki og hiti en hitastigið hér er ca 30 gráður og er spáð upp í 33 stiga hita á vikunni plús miklum raka :)..  

Við ætlum svo að fara í bæinn á morgun að kaupa myndavél því okkar datt í gólfið á Tene og er ónothæf ;) við setjum svo inn myndir af herlegheitunum :)

Kveðja Biggi


Ferðalagið til Kína

Hæ, hæ

Í dag byrjar ferðalagið til Kína.  Ég var rétt í þessu að klára að pakka niður og er ég bara að bíða eftir að konan sé búin að pakka. 

Jú hún ætlar að koma með og vera mér til halds og trausts, það verður frábært að fá hana með.  Hainan%20Island%20-%20Itanya

Mamma mín kom í gær og ætlar að passa börnin á meðan og erum við mjög þakklát fyrir það.  Það er ekki á hverjum degi sem við getum farið til Kína saman.  

Við munum keyra til Frankfurt á eftir og þaðan eigum við flug klukkann 17.35 til Hong Kong.  Þegar þar er komið þá þurfum við að ná í farangurinn og ná í flugmiðana sem mun bera okkur til Hainan Island, þar sem mótið fer fram. 

Ferðalagið mun taka allt að 24 klst. og munum við lenda 20.05 annað kvöld., gaman, gaman.   

Það eina sem ég veit um völlinn er það að hann er hannaður af Robert Trent Jones og lofar það mjög góðu því hann hannar einungis glæsilega velli.  

Æfingar hafa gengið vel fyrir utan smá meiðsli síðustu daga, tak undir vinstra herðablaði eftir lyftingar og æfingar. 

Það verður vonandi orðið gott fyrir mót. 

Jæja ég verð að rjúka, ég læt heyra í mér þegar við erum búin að koma okkur fyrir í Kína og skoða völlinn.

Bless, bless..

Biggi


Flyt mig um set á Moggabloggið

Eins og sjá má hef ég flutt mig um set í bloggheimum.
Nýja bloggið mitt er hér á Moggablogginu og slóðin er einföld,  birgirleifur.blog.is.
a7965d90cd7cfa5ad24e3f7c16f85f6e

Á þessu nýja stað mun ég láta vita af mér af og til. Hérna verða ferðasögur, fréttir af mótum og annað sem til fellur á ferðum mínum á Evrópumótaröðinni.

Ég vona að þessi flutningur valdi ekki neinum óþægindum fyrir þá sem fylgdust með mér á gamla staðnum og þeir sem heimsækja gamla bloggið mitt verða fluttir yfir á það nýja.

Endilega haldið áfram að senda inn athugasemdir.

Kveðja: Birgir Leifur

Kína hér kem ég

Jæja þá er komið að því að ég held af stað til Kína :).
 
Eftir mikla vinnu er mér að takast að redda mér vegabréfsáritun inn í landið og fæ hana vonandi hjá ambassadornum í Lúx á föstudaginn :)..ChinaGreatWall
 
Ég er ekki búinn að fá flugið hjá gaurnum sem sér um mín mál í gegnum túrinn en bíð rólegur eftir því.
 
Ég á von á að ég fari á sunnudaginn frá Frankfurt sem eru rétt rúmum tveim tímum frá Lúxembourg.
 
Í vikunni er ég búinn að vera að æfa og klára mál sem átti eftir að klára og er það allt að verða klappað og klárt. Veðrið er búið að vera alveg ágætt, tók 9 holur í gær í mjög góðu veðri, æfði en svo þegar ég var að klára þá kom þessi líka ausandi rigning.
 
Æfingarnar hafa gengið mjög vel, ég er að hitta boltann mjög vel og má segja að hvert högg hjá mér í gær hafi verið alveg eins og ég vildi hafa það og var mjög sáttur með gang mála.
 
Ég væri nú alveg til í að vera að spila í Singapore núna en komst því miður ekki inn í mótið en svona getur þetta nú verið.

Hef það ekki lengra að sinni... en læt heyra í mér áður en ég fer út..

Bestu kveðjur Biggi


« Fyrri síða

Höfundur

Birgir Leifur Hafþórsson
Birgir Leifur Hafþórsson
Birgir Leifur Hafþórsson kylfingur úr GKG og spilar á Evrópumótaröðinni.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband