23.3.2007 | 22:33
Nokkuð bjartsýnn
Dagurinn í dag endaði bara vel og verð ég að segja að ég er bara nokkuð sáttur. Staðsetning vallarins er upp í fjalli og völlurinn því mjög hæðóttur. Stefán Már var að standa sig mjög vel á pokanum og verður án efa í fanta formi á morgun eftir labbið upp og niður brekkurnar í dag. Hótelið sem við erum á er mjög fínt, þó ekki sé neinu lífi hér fyrir að fara. Við höfum til að mynda arkað um svæðið í leit að góðum veitingastöðum með misgóðum árangri. Eftir hringinn í dag skelltum við okkur svo í gufu og tókum sólarhæðina fyrir morgundaginn. Kvöldunum höfum við eytt í að horfa á Prision break og fleiri góða þætti og haft það kósý hi hi.. Ég á teig klukkan 8.35 í fyrramálið og verð í holli með norðmanni og englendingi.
Vona svo bara að ég færi ykkur góðar fréttir á morgun,
Biggi
Athugasemdir
Gangi þér áfram sem allra best. GKG-ingar á leið til Costa Ballena eru stoltir af þér. Þú ert sómi okkar, sverð og skjöldur!
Gunnar Jónsson
Gunnar Jónsson (IP-tala skráð) 23.3.2007 kl. 22:39
Það verður þinn dagur á morgun Birgir
Gangi þér vel
Þorsteinn Sverrisson
Þorsteinn Sverrisson, 23.3.2007 kl. 22:55
Gangi þér sem allra best maður fylgist með eins og maður fylgist með Íslenska landsliðinu!!!! og ekki gleyma því, þú ert að spila fyrir Ísland!
Halldór
Halldór (IP-tala skráð) 23.3.2007 kl. 23:21
Var að lesa bloggið hanns Ingva Hrafns Íslandshreyfingin húmbúgg? þar sem hann fer lofsamlegum orðum um þig. Gangi þér allt í haginn kappi.
Sigfús Sigurþórsson., 24.3.2007 kl. 02:16
Hvað fékkstu þér eiginlega í morgunmat? 2 fuglar á fyrstu 2 holunum!! Stórgott start..
Bói (IP-tala skráð) 24.3.2007 kl. 09:33
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.